Dagur þrjú-Veðurblíða

Jæja, það er þvílík veðurblíða á höfuðborgarsvæðinu í dag.  Sumarfríið okkar hefur lengst við dvölina hér.  Það má segja að okkur hafi liðið vel hér hjá Kris og Hófí.  Og heimasætan hún Alís hefur haldið okkur við efnið.

Dagurinn í dag hefur verið góður. Byrjuðum á morgunmat á pallinum hjá þeim.  Það var bara eins og að vera í útlöndum.  Þar á eftir hreyfðum við okkur í göngutúr með Alís.

Fórum til Kalla og Evu og sáum alla pakkana tekna upp ásamt því að fá afganga úr veislunni.

Svo fórum við "heim".  Guðbjartur kom eftir að hafa gengið á Esjuna.  Hann var verulega bjórþyrstur eftir gönguna.  Við borðuðum pizzur saman og fórum svo í pool. Ég vann ekki alltaf........svona er Þetta.

Jæja, hér koma myndir sem segja meira en þúsund orð.

 IMG_1358IMG_1365IMG_1375IMG_1377IMG_1381IMG_1382


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þið eru flott á sólpallinum í morgunmat,

já Pétur þetta kemur líka í Reykjavík sól og blíða

þetta er flott hjá þér gaman að geta séð myndir af ykkur og filgst með ykkur hafið það gott þetta er bara synishorn á veðrinu sem koma skal hjá ykkur

svavar þór Guðjónsson (IP-tala skráð) 28.5.2007 kl. 13:37

2 identicon

Gaman að þessu.

Hlakka til að fylgjast með ferðablogginu.

Góða skemmtun

Gústi (IP-tala skráð) 28.5.2007 kl. 14:48

3 identicon

Ég vona að 8 feitu mjaltarkellingarnar sláist ekki við dvergana sjö á áttunda degi. Það gætu brotist úr alsherjar slagsmál um borð út frá því.

Af öllu gamni slepptu þá er búið að vera gaman af því að fylgjast með ferðalaginu hingað til svo ég tali nú ekki um að fá myndir líka.

Bestu kveðjur úr blkíðunni hérna í Grayslake.

Haukur (IP-tala skráð) 28.5.2007 kl. 14:56

4 identicon

Jæja þið þarna!!! Ég sit hérna heima í einhverju skíta veðri, að læra eins og ég veit ekki hvað !!! Það er eins gott að þið kaupið e-ð sniðugt handa mér annars sver ég að íbúðin fær að vera í henglum þegar þið komið til baka !!!

Nei okey. Skemmtið ykkur bara æðislega vel þarna úti =) Besta við þetta allt er að ég get farið í einn ljósatíma áður en þið komið heim og ég verð alltaf pottþétt brúnni en pabbi =D en já héðan er allt gott að frétta. Broddi fluttur inn og Helga virðist ætla fara vera fastagestur hérna næstu daga. Klukkan er að verða 11 og þið skuldið ennþá að heyra í mér. Hurry Up!!

Birkir Örn (IP-tala skráð) 28.5.2007 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband