Eftir verslunarmannahelgi
8.8.2006 | 09:39
Einni með öllu 2006 á Akureyri er lokið. Eftir standa minningar um skemmtilega helgi hjá flestum, vonandi. Götur Akureyrar eru gráar og tómar eftir að hafa iðað af mannlífi. Það er svolítið gott, ekki síst þar sem varla sést rusl eða önnur vegsummerki eftir fleiri tugi manna sem skemmtu sér.
Mánudagur, frídagur verlsunarmanna, hefur ævinlega kallað fram ákveðin létti í mínum huga. Það er alltaf svolítið gott að helgin sé búin. Þetta kemur auðvitað til af því að ég hef verið að vinna langflestar verslunarmannahelgar síðustu fimmtán ár. En ég er svo heppinn, eins og ég hef áður sagt, að ég hef haft gaman af vinnunni minni. En það sem er gaman er oft erfitt. Nýliðinn helgi var skemmtileg en erfið. Spilað á Kaffi Akureyri frá miðnætti til morguns tekur ansi mikið á.
En nú er kominn nýr dagur, ný vinnuvika og að mörgu leiti nýtt upphaf. Já, mér finnst oft kaflaskil í árinu um versló. Það er komið síðsumar, ágúst að áliðnum slætti eins og sagt var í dægurlagatextanum. Framundan er Fiskidagurinn mikli um næstu helgi, ég er í fríi sem er mjög gott. Hef ekki fengið fríhelgi síðan í júlí. Svo styttist í utanlandsferðina til Tenerife og ég hlakka mikið til. Við förum 24.ágúst.
Þriðjudagur eftir verslunarmannahelgi. Góð helgi að baki, að mestu slysalaus sem skiptir mestu máli. Það rignir. Gráar göturnar skola burtu úrgangi helgarinnar. Akureyri er hrein og falleg í dag.
Góða vinnuviku gott fólk.
Athugasemdir
elli
Heill og sæll. Var að vona að ég hitti þig á röltinu um versló en þú ert alltaf svo bissí að það var borin von. Til hamingju með nýju síðuna og ég er sammála þér með að þessi helgi er kaflaskil á árinu. Heyrði í einum um helgina sem sagði að nú færi allt í fastar skorður. Börnin í skóla og sumarfrí búin hjá flestum og allt að róast. Regla á óregluna haha.
Hafðu það gott. elli
elli (IP-tala skráð) 8.8.2006 kl. 11:23
Ég hef ekki beint neinu við þetta að bæta hjá þér. Jú, auðvita get ég hrist eitthvað fram úr erminni. Síðustu 25 tímarnir voru erfiðir hjá mér. Ég vann og flaug stanslaust í þennan tíma. Það er að koma ennþá erfiðari törn sem byrjar á morgun og að henni lokni fer ég HEIM. Ég er búinn á því núna.
Ég sé að fólk er að skoða síðunna þína en það er ekki kommentað mikið upp á síðakasti. Eru allir svona Busy?
Bestu kveðjur frá Ítalíu.
Haukur Guðjónsson (IP-tala skráð) 8.8.2006 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.