Fréttaflutningur
9.8.2006 | 14:37
Miðvikudagur. Veðrið að skána, við erum hætt að brúka panodil-parið eftir þynnku helgarinnar, flestir amk. Nú eru fjölmiðlar u.þ.b. búnir að fá nóg af fréttum nýliðinnar helgar og farnir að hugsa um þá næstu.
Mér finnst sífellt mikilvægara, með hækkandi aldri og auknum þroska. að segja hlutina eins og þeir eru. Og ég bara skil ekki hvernig fréttaflutningur frá Einni með öllu var eftir verslunarmannahelgina. Þá er ég ekki að tala um dópmálin og alla svörtu hliðina á hátíðinni. Hún var því miður til staðar og að sjálfsögðu á að fjalla um hana. Hins vegar voru fleiri á Akureyri um nýliðna helgi en skakkir krakkagemlingar og ribbaldalýður. Hér fór nefninlega fram hátíð þar sem mjög margir skemmtu sér á siðmenntaðan máta. Það er til dæmis athyglistvert að lítið sem ekkert var talað við forstöðumann tjaldsvæðanna á Akureyri hvernig gengi þar. Ég fór á Tjaldsvæðið á Hömrum á laugardaginn þar sem fjölskyldufólk hafði komið sér fyrir í friðsælu umhverfi. Það var þvílíkur fjöldi þar en það vildi enginn vita.
Ég endurtek að ég mótmæli ekki fréttaflutningi af dökku hlið hátíðarinnar og þykir sárt að vita af nauðgunum, fíkniefnanotkun og líkamsárásum. Ég geri alls ekki lítið úr þeim hörmungum og sársauka sem því fylgir. En ljósa hliðin verður nú að fá að fljóta með.
Í fréttum morgunsjónvarpsins á Stöð 2 og Bylgjuni á þriðjudagsmorgun var fjallað um dóplýðinn á Akureyri í sennilega eina til tvær mínútur en Innipúkinn í Reykjavík fékk umfjöllun í líklega þrjár til fjórar mínútur og þar var eingöngu úttekt á hljómsveitum og hvernig VIRKILEGA tóks til.
Fréttir á Íslandi eru líklega ekkert öðruvísi en fréttir utan úr heimi; ef einhver skaði eða hrotti er ekki í gangi, telst það ekki frétt. En okkur vantar fleiri fréttamenn eins og Gísla Einars, sem þykir frétt ef gleðilegir og góðir hlutir gerast og fjallar jafnvel um girðingar og rollur á túni.
Ein með öllu á Akureyri var ekki svona hroðaleg eins og fréttaflutningur bar vitni um. Sjálfur var ég mikið í mannlífinu og var ekki skakkur eða barinn.
Athugasemdir
Ég vil bara hrósa lögreglunni hér á Akureyri fyrir hvað hún var virk í leit að fíkniefnum. Það þarf engin að segja mér að það hafi ekki verið allt morandi af fíkniefni í Vestm. Húrra fyrir löggunni hér og líka fyrir að koma hreint framm:)
Laufey (IP-tala skráð) 9.8.2006 kl. 17:56
Hæ,hæ. núna er ég rosalega sammála þér Pétur með frétta fluttning. Það er alltof mikið talað um það neikvæða. Ég er oft mjög þreittur að heyra um endalaus stríð og þess háttar þegar ég ferðast unm heiminn. það er t.d ekkert annað á CNN. Ég veit að ég er aðeins að fara út fyrir þennan ramma sem þú ert að tala um. Ég er viss um að það hafi verið margt gott um Versló á Akureyri.
Haukur Guðjónsson (IP-tala skráð) 10.8.2006 kl. 22:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.